Sérfræðingur – losun Íslands

Hefur þú áhuga á loftslagsmálum? Sérfræðingur – losun Íslands

Umsóknarfrestur: 15.11.2021 til 29.11.2021

Hjá Umhverfisstofnun er laust til umsóknar starf sérfræðings í teymi losunarbókhalds.

Megin verkefni sérfræðingsins verða söfnun gagna frá stofnunum og fyrirtækjum, utanumhald og útreikningar á losun gróðurhúsalofttegunda og  loftmengunarefna, sem og þátttaka í úttektum á losunarbókhaldi og vinnu við regluverk. Í starfinu  felst jafnframt greining á þróun losunartalna og túlkun bókhaldsins. Sérfræðingurinn mun taka þátt í miðlun upplýsinga um losunarbókhaldið og loftslagsmál almennt, bæði til hagsmunaaðila og almennings. Sérfræðingurinn mun starfa í öflugu teymi þar sem áhersla er lögð á þverfaglega samvinnu. Mikil samskipti eru við evrópskar og alþjóðlegar stofnanir.

 Helstu verkefni og ábyrgð

  • Söfnun gagna frá stofnunum og fyrirtækjum
  • Utanumhald og útreikningar á losun gróðurhúsalofttegunda og loftmengunarefna
  • Þátttaka í úttektum á losunarbókhaldi
  • Stjórnsýsluverkefni
  • Miðlun upplýsinga um losunarbókhaldið og loftslagsmál almennt, bæði til hagsmunaaðila og almennings
  • Samskipti við evrópskar og alþjóðlegar stofnanir

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði verkfræði, náttúruvísinda eða sambærilegra greina með áherslu á úrvinnslu gagna
  • Þekking og/eða reynsla af loftgæða- og/eða loftslagsmálum
  • Talnagleggni, greiningarhæfni og gott vald á Excel
  • Hæfni til miðlunar og  framsetningar efnis á aðgengilegan hátt
  • Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti
  • Góð samstarfshæfni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Haldbær þekking á einu Norðurlandamáli er kostur

Tengiliðir

Elva Rakel Jónsdóttir – [email protected] – 5912000
Þóra Margrét Pálsdóttir Briem – [email protected] – 5912000

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags hafa gert.

Starfsaðstaða sérfræðingsins  getur verið í Reykjavík, Hellissandi, Patreksfirði, Ísafirði, Akureyri, Mývatni, Egilsstöðum, Hellu eða Vestmannaeyjum; allt eftir búsetu.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Sjá nánari upplýsingar um Umhverfisstofnun á umhverfisstofnun.is

Starfshlutfall er 100 – 100%

Umsóknarfrestur er til og með 29.11.2021

Sækja um

 

Secret Link