Sérfræðingur í stjórnstöð
Óskað er eftir sérfræðingum í stjórnstöð fyrirtækisins. Stjórnstöð er ný deild og
munu sérfræðingar deildarinnar taka þátt í mótun hennar ásamt innleiðingu nýrra
kerfa sem notuð verða við úrlausn þeirra spennandi verkefna sem framundan
eru. Þegar deildin tekur til starfa þá mun hún hafa umsjón með vöktun og
stýringu veitukerfa RARIK ásamt öðrum verkefnum tengdum rauntímastjórnun
og skipulagningu rofs og vinnu. Starfið er unnið á dag-, kvöld- og bakvöktum.
Staðsetning sérfræðinga stjórnstöðvarinnar getur verið á fleiri en einni starfsstöð
fyrirtækisins. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um.
Helstu verkefni:
• Stýring og vöktun veitukerfa RARIK
• Aðgerðastjórnun
• Skipulagning rofs og vinnu
• Samskipti við viðskiptavini
• Upplýsingagjöf til innri og ytri aðila
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Rafmagnsiðn-, -tækni- eða -verkfræði
• Þekking og reynsla af háspennukerfum er kostur
• Jákvæðni og lipurð í samskiptum
• Góð tölvukunnátta
• Drifkraftur og geta til að vinna sjálfstætt
Nánari upplýsingar veita Gísli Þór Ólafsson, deildarstjóri stjórnstöðvar
og starfsmannastjóri í síma 528 9000.
Umsóknafrestur er til 24. janúar og skal skila umsókn með ferilskrá á www.rarik.is/atvinna.
RARIK ohf. er rekið sem opinbert hlutafélag í eigu ríkisins. Hlutverk RARIK er að dreifa raforku auk þess að afla, dreifa og annast sölu á heitu vatni. Starfsmenn RARIK eru um 200 á 20 starfsstöðvum sem eru dreifðar vítt og breitt um landið.