Sérfræðingur í mannauðsmálum / HR Business Partner

Alcoa Fjarðaál leitar að metnaðarfullum og reyndum einstaklingi í starf sérfræðings í mannauðsmálum (HRBP). Alcoa Fjarðaál er eitt af stærstu iðnfyrirtækjum landsins með um 540 fastráðna starfsmenn í einstaklega fjölbreyttum störfum. Viðkomandi mun verða hluti af mannauðsteyminu (HR) og leiðir fjölbreytt mannauðstengd verkefni á vinnustaðnum, byggð á gildum, stefnum og starfsháttum Alcoa.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfa sem stefnumótandi samstarfsaðili með stjórnendum.
  • Þátttakandi í fjölbreyttri umbótavinnu víðsvegar í fyrirtækin.
  • Þróa og Innleiða fjölbreytt HR verkefni í takt við stefnur og áherslur vinnustaðarins.
  • Veita stjórnendum þjálfun og stuðning í mannauðstengdum málum.
  • Greina og vinna með HR mælikvarða.
  • Tryggja að unnið sé faglega og farið að lögum og reglugerðum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Bachelor gráðu í mannauði, viðskiptafræði eða skyldu sviði.
  • Reynsla í mannauðsmálum, sem sérfræðingur eða sambærilegt
  • Framúrskarandi samskiptafærni
  • Sterk greiningarhæfni og lausnamiðað hugarfar
  • Þekking á vinnurétti
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og sem hluti af teymi
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Gott vald á íslensku og ensku