Sérfræðingur í launavinnslu
Alcoa Fjarðaál leitar að jákvæðum og hæfileikaríkum einstaklingi í starf sérfræðings í launaþjónustu, um er að ræða 100% stöðugildi. Viðkomandi sinnir launavinnslu, greiningum á launakostnaði og upplýsingagjöf itl starfsmanna og stjórnenda. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir samskiptahæfni, sýnir frumkvæði og hefur tileinkað sér sjálfstæð vinnubrögð.
Alcoa Fjarðaál er eitt stærsta iðnfyrirtæki landsins með um 540 starfsmenn á launaskrá auk nærri 100 sumarstarfsmanna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fjölbreytt verkefni tengd launavinnslu
- Útreikningur á kjörum og réttindum starfsmanna skv. Kjarasamningi
- Launatengd greiningarvinna
- Upplýsingagjöf til starfsmanna og sjtórnenda
- Viðhald og þróun ferla í launavinnslu
- Afleysing leiðtoga launaþjónustu
- Önnur verkefni skv. Starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi s.s. viðskiptafræði eða bókhaldsnám eða reynsla og þekkng af sambærilegu starfi
- Þekking og reynsla af launavinnslu eða fjármálum kostur
- Þekkng á tímaskráningarkerfum og launakerfum kostur
- Góð þekking á gagnavinnslu og kunnátta í excel æskileg
- Nákvæmni, skipulagshæfni og sjáfstæði í vinnubrögðum
- Þjónustulund, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Gott vald á íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
- Mötuneyti
- Rútuferðir frá helstu byggðarkjörnum
- Íþrótta- og meðferðarstyrkir
Frekari upplýsingar um starfið veitir Sunna Jóhannsdóttir, leiðtogi launaþjónustu, í tölvupósti [email protected] eða í síma 843 7950. Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.
Hægt er að sækja um starfið á www.alcoa.is. Umsóknarfrestur er til og með 22. febrúar 2023.