Sérfræðingur í innkaupateymi
Sérfræðingur í innkaupateymi
Alcoa Fjarðaál leitar að öflugum sérfræðingi í innkaupateymi fyrirtækisins. Innkaup á vörum og þjónustu eru mjög mikilvægur þáttur í rekstri álversins. Innkaupateymið heyrir undir innkaupasvið móðurfélagsins Alcoa Corporation og ber ábyrgð á útboðum, samningagerð, innkaupaferlum og innkaupastefnu Alcoa Fjarðaáls.
Ábyrgð og verkefni
- Greining þarfa og kostnaðar
- Útboð á vörum og þjónustu
- Samningar við birgja og verktaka
- Samskiopti við beiðendur innkaupa
- Útgáfa og eftirfylgni innkaupapantana
- Þróun innkaupaferla og innkaupastefnu
Menntun, hæfni og reynsla
- Háskólapróf í viðskiptafræði, lögfræði eða önnur hagnýt háskólamenntun
- Reynsla af innkaupum og samningagerð er æskileg
- Færni í greiningu gagna og miðlun upplýsinga
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði
- Teymishugsun og lipurð í samskiptum
- Gott vald á íslensku og ensku
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ormarr Örlygsson innkaupastjóri í tölvupósti á netfanginu [email protected] eða í síma 843 7736.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.
Hægt er að sækja um starfið á www.alcoa.is
Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 30. maí