Sérfræðingur fiskeldis á Austfjörðum

Matvælastofnun óskar eftir að ráða háskólamenntaðan einstakling með fagþekkingu á fiskeldi í 100% starf sérfræðings með aðsetur á starfsstöð Matvælastofnunar á Egilsstöðum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Eftirlit með búnaði og rekstri fiskeldisstöðva
  • Þróun eftirlitsaðferða
  • Þróun og uppsetning gæðaskjala
  • Útgáfa rekstrarleyfa
  • Úrlausn fyrirspurna
  • Eftirlit í matvælafyrirtækjum
  • Bátaskoðanir og eftirlit með aflameðferð
  • Skýrslugerð og úrvinnsla gagna

Hæfnikröfur

  • Háskólamenntun í sjávarútvegsfræði, fiskeldi, líffræði, verkfræði eða skyldum greinum
  • Fagþekking og/eða reynsla af fiskeldi
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu er æskileg
  • Góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Færni í mannlegum samskiptum og vilji til teymisvinnu
  • Nákvæmni, frumkvæði, fagleg vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
  • Reynsla af opinberu eftirliti æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamnings sem fjármálá- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Sótt er um starfið í þjónustugátt á vef Matvælastofnunar www.mast.is og skal starfsferilskrá, prófskírteini og kynningarbréf fylgja umsókn. Umsóknarfrestur er til og með 9. nóvember n.k.

Nánari upplýsingar veitir

Nánari upplýsingar um starfið veitir Erna Karen Óskarsdóttir fagsviðsstjóri, [email protected] í síma 530 4800.

Secret Link