Sérfræðingur á sviði efnamælinga
Sérfræðingur á sviði efnamælinga (Neskaupstaður)
Hjá Matís er laust til umsóknar starf sérfræðings. Við leitum að sjálfstæðum og metnaðarfullum einstaklingi til að starfa í öflugu teymi í Neskaupstað.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Efnamælingar og viðhald tækja
- Viðhald mæliaðferða og verkefna í faggildu umhverfi fyrir iðnað og rannsóknir Matís
- Upplýsingamiðlun og samskipti við viðskiptavini
- Innkaup og samskipti við birgja
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf í efnafræði, efnaverkfræði, lífefnafræði eða sambærilegu
- Góð samstarfshæfni og sveigjanleiki í samskiptum
- Æskilegt er að viðkomandi hafi unnið við efnamælingar og hafi reynslu af viðhaldi tækja
- Frumkvæði, áreiðanleiki og metnaður
Starfshlutfall er 100% og er starfið staðsett í Neskaupstað.
Með vísan í jafnréttisstefnu Matís eru öll kyn hvött til að sækja um. Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda í viðkomandi starf. Einnig þarf að fylgja nafn og símanúmer eða tölvupóstfang hjá tveimur meðmælendum sem geta staðfest hæfni umsækjanda
Umsóknarfrestur er til 11.11.22 og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Matís: https://jobs.50skills.com/matis/is/16292
Nánari upplýsingar um starfið veitir Natasa Desnica, [email protected]