Sálfræðingur – Heilbrigðisstofnun Austurlands – Afleysing
Sálfræðingur – Heilbrigðisstofnun Austurlands – Afleysing
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða sálfræðing til starfa hjá stofnuninni.
Um er að ræða 100% afleysingarstöðu sálfræðings til eins árs innan heilsugæslu HSA. Staðan veitist frá 1. júní 2020 eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Óskað er eftir sálfræðingi í heilsugæslu HSA til að veita almenna sálfræðiþjónustu fyrir börn og ungmenni og foreldra ráðgjöf. Innan starfs felst þátttaka í hópmeðferð, sem og skipulagningu og þróun sálfræðiþjónustu á Austurlandi í samvinnu við yfirsálfræðing.
Helstu verkefni:
Meðferð og greining barna og vinna með fjölskyldur þeirra.
Hópmeðferð fyrir börn, ungmenni og fullorðna.
Þátttaka í stefnumótun sálfræðiþjónustu heilsugæslunnar á Austurlandi.
Hæfnikröfur
Réttindi til að starfa sem sálfræðingur á Íslandi.
Reynsla af klínísku starfi með börnum æskileg.
Þekking og reynsla af hugrænni atferlismeðferð æskileg.
Reynsla af notkun sálfræðilegra prófa og greiningartækja æskileg.
Samskiptahæfni og sveigjanleiki.
Ökuréttindi og færni til að keyra beinskipta bíla.
Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Lögð er áhersla á faglegan metnað, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Umsókn fylgi staðfestar upplýsingar um nám, starfsreynslu, og ef við á, kennslu og vísindastörf, ásamt afriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað. Mat HSA byggist á innsendum umsóknargögnum. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem ekki teljast uppfylla framangreind skilyrði. Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.
Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.05.2020
Nánari upplýsingar veitir
Sigurlín Hrund Kjartansdóttir – [email protected] – 862-2793
Emil Sigurjónsson – [email protected] – 470-3053 & 895-2488
Stjórn og skrifstofa
Lagarás 22
700 Egilsstaðir