Reyðarfjörður

N1 óskar eftir að ráða kraftmikinn verslunarstjóra í verslun félagsins á Reyðarfirði.

Megináhersla verslunarinnar er m.a. á bílavörur, útgerðarvörur, efnavörur, fatnað, verkfæri, olíuvörur, þjónusta við einstaklinga og fyrirtæki.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni:

  • Daglegur rekstur verslunarinnar
  • Verkstjórn og eftirlit
  • Ráðgjöf og þjónusta við viðskiptavini
  • Önnur tilfallandi störf í versluninni

Hæfniskröfur:

  • Reynsla og þekking á verslun og þjónustu
  • Þekking á ofangreidum vörutegundum
  • Samskiptafærni
  • Þjónustulipurð

Fríðindi í starfi:

  • Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni og ELKO
  • Aðgangur að Velferðarþjónustu N1
  • Styrkur til heilsueflingar

Áhugasamir sæki um á www.n1.is – merkt Reyðarfjörður verslunarstjóri, ferilskrá og kynningarbréf fylgi með umsókn.

Umsóknarfrestur er til og með 17. ágúst 2022

Nánari uppýsingar um starfið veitir Páll Örn Líndal rekstarstjóri hjá [email protected]