Reyðarfjörður – starfsmaður

Vínbúðirnar óska eftir að ráða starfsmann í Vínbúðina Reyðarfirði.

Við leitum að jákvæðum, glaðlyndum og þjónustuliprum einstaklingi sem er tilbúinn að veita framúrskarandi og ábyrga þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
  • Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun
  • Umhirða búðar

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af verslunarstörfum er kostur
  • Jákvæðni og góð þjónustulund
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Almenn tölvukunnátta

Starfshlutfall er 94%. Um er að ræða tímabundið starf í ár.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Umsækjandi skal hafa náð 20 ára aldri.

Sakavottorðs er krafist.

Umsóknarfrestur er til og með 31. Ágúst. Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um á www.vinbudin.is.

Nánari upplýsingar veita Ásdís Bóasdóttir – [email protected] – 560 7880 og Thelma Kristín Snorradóttir – [email protected] – 560 7700.

ÁTVR recur 51 vínbúð um allt land. Stefna ÁTVR er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.

Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks.

Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti. Þannig eflum við þekkingu og kraft fyrirtækisins.

Gildi ÁTVR eru LIPURÐ ÞEKKING – ÁBYRGÐ. Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum.

Secret Link