Rekstrarstjóri útgerðar – Neskaupstaður

Starfið felur í sér ábyrgð á rekstri og viðhaldi skipa Síldarvinnslunnar og aðkomu að rekstri og viðhaldi skipa dótturfélaga.  
Helstu verkefni og ábyrgð
● Áætlanagerð og eftirfylgni
● Tengiliður milli skipstjórnarmanna, vélstjóra og framkvæmdarstjóra
● Samskipti við birgja og umsjón innkaupa
● Samskipti við eftirlitsaðila
● Umsjón öryggis- og gæðamála útgerðar
● Eftirlit með hönnun, útboðum og framkvæmd stærri viðhaldsverkefna
● Umbætur í rekstri og önnur verkefni er snúa að rekstri útgerðarinnar

Menntunar- og hæfniskröfur
● Menntun sem nýtist í starfi, s.s. tækni-, verkfræði eða vélstjórn
● Farsæl stjórnunarreynsla
● Tæknileg kunnátta, s.s. reynsla og þekking á skipum og búnaði þeirra er kostur
● Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
● Góð almenn tölvukunnátta
● Þekking á Navision er kostur
● Góð íslensku- og enskukunnátta

Fríðindi í starfi
● Síldarvinnslan mun aðstoða með búferlaflutninga

Nánari upplýsingar um starfið gefur Hákon Ernuson,
starfsmannastjóri [email protected]

Neskaupstaður er blómlegt samfélag með um 1500 íbúa. Náttúrufegurð er mikil og þar er gott að ala upp börn. Í Neskaupstað er öflugt íþróttastarf og félags- og menningarlíf, gott skíðasvæði í Oddsskarði, fallegur 9 holu golfvöllur, einhver besta sundlaug landsins og fjölbreytt tækifæri til útivistar og veiða. Einnig er skólastarf metnaðarfullt og auðvelt er að fá pláss á glænýjum leikskóla, auk þess sem Fjórðungssjúkrahús Austurlands er á staðnum. Neskaupstaður er hluti af Fjarðabyggð – 5000 manna sveitarfélagi sem byggir á öflugu og stöðugu atvinnulífi. Ný veggöng til Eskifjarðar sem tekin voru í notkun árið 2017 voru bylting í samgöngumálum byggðarlagsins.

Secret Link