Rekstrarstjóri HSA – Egilsstaðir – Afleysing

Rekstrarstjóri HSA – Egilsstaðir – Afleysing

Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir að ráða rekstrarstjóra í afleysingu í eitt ár sem fer með daglega stjórnun og umsjón á rekstri á Egilsstöðum og Vopnafirði. Um er að ræða 100% stöðugildi eða skv. samkomulagi, í dagvinnu í sveigjanlegum vinnutíma.
Staðan veitist frá 1. ágúst 2020.

Helstu verkefni og ábyrgð
Rekstrarstjóri ber ábyrgð á og hefur umsjón með daglegum rekstri HSA á Egilsstöðum og Vopnafirði og ber rekstrar- og stjórnunarábyrgð á eftirfarandi stoðdeildum; þvottahúsi, ræstingu, eldhúsi, móttöku- og læknariturum ásamt því að eiga sæti í framkvæmdateymi HSA. Hefur jafnframt umsjón með rekstri húsnæðis í samráði við tæknideild. Rekstrarstjóri annast eða kemur að ráðningum starfsmanna í samráði við yfirmenn deilda og mannauðsstjóra, vinnur við launavinnslu, tekur þátt í teymisvinnu og framfylgir rekstrar- og aðgerðaráætlunum framkvæmdastjórnar. Næsti yfirmaður er forstjóri.

Hæfnikröfur
Rekstrarstjóri þarf að hafa háskólamenntun eða aðra viðurkennda menntun sem nýtist í starfi. Reynsla af heilbrigðisþjónustu er æskileg. Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu og reynslu af rekstri og stjórnun.
Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Góð íslenskukunnátta er áskilin. Viðkomandi þarf að hafa gild ökuréttindi.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjarafélag viðskipta- og hagfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði.

Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.05.2020

Nánari upplýsingar veitir
Emil Sigurjónsson – [email protected] – 470-3053 & 895-2488
Guðjón Hauksson – [email protected] – 470-3051 & 774-5030

Stjórn og skrifstofa
Lagarás 22
700 Egilsstaðir

Smellið hér til að sækja um starf