Rekstarstjóri
Hótel Eskifjörður leitar að öflugum liðsmanni í stöðu rekstarstjóra fyrir hótelið.
Rekstarstjóri hefur yfirumsjón með hótelinu og ber ábyrgð á daglegum rekstri, ásamt því að sjá um mannaráðningar, þjálfa og leiðbeina starfsfólki og geta gengið í önnur störf eftir þörfum.
Þá skal rekstartjóri annast markaðssetningu hótelsins og vinna að því með samstarfsaðilum að bæta nýtingu hótelsins utan helsta ferðamannatíma, meðal annars með því að tengjast viðburðum á Austurlandi.
Góð tölvu- og tungumálakunnátta er nauðsynleg og kostur að hafa reynslu af hótelstörfum, markaðsmálum og viðburðarstjórn.
Mikilvægt er að geta unnið sjálfstætt og vera lipur í mannlegum samskiptum.
Hótel Eskifjörður er 17 herbergja hótel.
Allar nánari upplýsingar veitir Árni í síma 898 1207. Umsóknir sendist á netfangið [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 5. apríl 2023