Rafvirkjameistari óskast til starfa
Launafl ehf óskar eftir að ráða rafvirkjameistara til að stýra rafmagnsdeild fyrirtækisins. Viðkomandi þarf að hafa góða samskiptafærni, skipulagshæfileika og faglega þekkingu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á skipulagi og stjórnun á starfsemi deildarinnar
Gera verkáætlanir að ósk kaupenda
Tilboðsgerð og kostnaðaráætlanir
Framfylgni gæðastaðla og hönnunargagna
Frumkvæði að öflun nýrra verkefna
Ábyrgð á starfsmannamálum deildar
Menntunar- og hæfniskröfur
Meistarabréf í rafvirkjun
Góð tölvufærni, reynsla af DK hugbúnaði er kostur
Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Góð færni í mannlegum samskiptum
Rík þjónustulund og jákvætt viðmót
Frumkvæði, góð skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Hvetjum alla áhugasama að sækja um starfið óháð kyni.
Umsóknarfrestur er til og með 21 janúar 2022. Umsóknir, ferilskrár og kynningarbréf sendist til [email protected]
Nánari upplýsingar veitir Magnús Helgason framkvæmdastjóri í síma 840-7211 og [email protected] eða Ragnheiður I. Elmarsdóttir mannauðsstjóri í síma 892-7484 og [email protected]