Rafvirki óskast

Um er að ræða skemmtilegt, krefjandi og fjölbreytt starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og hafi búsetu á Fáskrúðsfirði.

Starfið felur í sér talsverða beina ábyrgð. Verkstjórastaða með mannaforráð.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ber ábyrgð á öllum rafbúnaði fyrirtækisins
  • Sinnir viðhaldi á öllu er viðkemur rafmagni hjá fyrirtækinu
  • Ber ábyrgð á að farið sé eftir lögum og reglugerðum
  • Stýrir rafmagnsdeild

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Meistararéttindi í rafvirkjun
  • Æskileg reynsla á sviði viðhalds á rafbúnaði
  • Reynsla af verkstjórn er kostur
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Frumkvæði, góð skipulagshæfni og sjáfstæði í starfi
  • Góð almenn tölvukunnátta

Loðnuvinnslan er rótgróið sjávarútvegsfyrirtæki í fremstu röð og fer öll starfsemi fyrirtækisins fram á Fáskrúðsfirði. Áhugavert tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnfríður Eide Hafþórsdóttir mannauðsstjóri í síma 470 5000. Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda á netfangið [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2023.

Secret Link