Rafvirki óskast – Verkstjórastaða með mannaforráð
Um er að ræða skemmtilegt, krefjandi og fjölbreytt starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og hafi búsetu á Fáskrúðsfirði.
Starfið felur í sér talsverða beina ábyrgð. Verkstjórastaða með mannaforráð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ber ábyrgð á öllum rafbúnaði fyrirtækisins
- Sinnir viðhaldi á öllu er viðkemur rafmagni hjá fyrirtækinu
- Ber ábyrgð á að farið sé eftir lögum og reglugerðum
- Stýrir rafmagnsdeild
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meistararéttindi í rafvirkjun
- Æskileg reyndsla á sviði viðhalds á rafbúnaði
- Reynsla af verkstjórn er kostur
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Gott vald á íslensku og ensku
- Frumkvæði, góð skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
- Góð almenn tölvukunnátta
Loðnuvinnslan er rótgróið sjávarútvegsfyrirtæki í fremstu röð og fer öll starfsemi fyrirtækisins fer fram á Fáskrúðsfirði. Áhugavert tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnfríður Eide Hafþórsdóttir mannauðsstjóri í síma 470 5000, en umsóknir ásamt ferilskrá skal senda á netfangið [email protected].
Umsóknarferstur er til og með 13. desember 2023.