Rafvirki í viðhaldsteymi
Eskja óskar eftir að ráða rafvirkja til að sinna fjölbreyttum og krefjandi störfum í viðhaldsteymi félagsins á Eskifriði. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Hvetjum alla áhugasama til að sækja um óháð kyni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Viðhald, eftirlit og viðgerðir
- Undirbúningur og skipulag viðhaldsverkefna
- Vinna við fyrirbyggjandi viðhald
- Verkefni í samstarfi við rekstrar- og tæknifólk
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í rafvirkjun eða önnur sambærileg menntun er skilyrði
- Reynsla af vinnu við PLC-stýringar er kostur
- Færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að starfa í teymi
- Vilji til stöðugra endurbóta
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Vilji til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni
Nánari upplýsingar veita Hlynur Ársælsson, rekstrarstjóri uppsjávarvinnslu ([email protected]) og Tómas Valdimarsson yfirmaður viðhaldsmála ([email protected]). Hægt er að sækja um starfið á vef fyrirtækisins, eskja.is. Umsóknarfrestur er til og með 11.febrúar nk.