Rafvirki í tengivirkjateymi á Austurlandi

Við leitum að fjölhæfum og framúrskarandi einstaklingi í tengivirkjateymi okkar á Austurlandi. Um er að ræða fjölbreytt starf með það að markmiði að tryggja örugga afhendingu rafmagns á Íslandi. Rafvirki sinnir verkefnum sem tengjast rekstri og viðhaldi flutningskerfisins. Verkefni sem lúta að eftirliti, skoðunum og viðhaldi á búnaði auk viðgerða og endurnýjunar á tengivirkjum. Öryggismál eru í forgangi hjá Landsneti og því mikið lagt upp úr þátttöku starfsfólks í að tryggja öryggi í öllum okkar verkum hvort heldur sem er persónu- eða umhverfisöryggi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fela í sér eftirlit og viðhald á tengivirkjum Landsnets. Meginstarfstöð er á Egilsstöðum en starfsvettvangur um allt land

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun í rafvirkjun, rafveituvirkjun eða sambærilega menntun sem nýtist í starfi æskileg
  • Reynsla af vinnu við háspennu æskileg
  • Sterk öryggisvitund
  • Öguð og nákvæm vinnubrögð
  • Frumkvæði, drifkraft og sjálfstæði í starfi
  • Jákvætt, uppbyggilegt og lausnamiðað viðhorf

Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2023 og sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Landsnets: Rafvirki í tengivirkjateymi á Austurlandi – 50skills

Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um óháð uppruna, aldri eða kyni. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem þú segir okkur af hverju þig langar til að bætast í hópinn.

Nánari upplýsingar veitir Jason Már Bergsteinsson mannauðssérfræðingur, [email protected]

Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.

Secret Link