Rafvirki Fjarðabyggð

RARIK ohf auglýsir eftir rafvirkja til starfa í Fjarðabyggð. Hér er um fjölbreytt starf að
ræða í öflugum vinnuflokki sem vinnur við dreifikerfi fyrirtæksins á Austurlandi.
Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um.

Hæfniskröfur
• Viðhald á dreifikerfi RARIK
• Eftirlit með tækjum og búnaði
• Viðgerðir
• Nýframkvæmdir
• Vinna samkvæmt öryggisreglum

Helstu verkefni
• Sveinspróf í rafvirkjun
• Öryggisvitund
• Almenn tölvukunnátta
• Drifkraftur og geta til að vinna sjálfstætt
• Bílpróf

Nánari upplýsingar veitir Bergur Hallgrímsson, deildarstjóri framkvæmdasviðs á
Austurlandi eða starfsmannastjóri RARIK í síma 528 9000.

Umsóknarfrestur er til 18. febrúar 2019 og skal skila umsóknum með ferilskrá á www.rarik.is/atvinna.
RARIK ohf. er rekið sem opinbert hlutafélag í eigu ríkisins. Hlutverk RARIK er að dreifa
raforku auk þess að afla, dreifa og annast sölu á heitu vatni. Starfsmenn RARIK eru
um 200, aðalskrifstofa er í Reykjavík og um 20 starfsstöðvar eru dreifðar vítt og breitt
um landið.

Secret Link