Rafvirki – Eskifjörður
Eskja hf. óskar eftir að ráða rafvirkja til að sinna fjölbreyttum og krefjandi störfum í
tæknideild í uppsjávarfrystihúsi félagsins á Eskifirði. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst.
STARFSSVIð
Starfið felur í sér viðhald, eftirlit og viðgerðir auk undirbúnings og skipulags viðhaldsverkefna.
Vinnu við fyrirbyggjandi viðhald ásamt samstarfi við rekstrar- og tæknifólk.
MENNTUNAR OG HÆFNISKRÖFUR
Umsækjendur þurfa að hafa sveinspróf í rafvirkjun eða aðra sambærilega menntun. Reynsla af
vinnu við PLC–stýringar er mikill kostur.
Aðrar kröfur sem gerðar eru til umsækjenda:
– Færni í mannlegum samskiptum
– Vilji til að leita stöðugra endurbóta
– Hæfni til að starfa í teymi
– Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
– Vilji til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni
UMSÓKNIR OG NÁNARI UPPLÝSINGAR
Nánari upplýsingar veitir Hlynur Ársælsson ([email protected]). Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið í gegnum heimasíðu fyrirtækisins: www.east.is
Umsóknarblöð er að finna undir flipanum:
Fyrirtækið->Atvinnuumsókn.
Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.