Ráðgjafi í málefnum fatlaðs fólks

Laus er til umsóknar 100% staða ráðgjafa í málefnum fatlaðs fólks í félagsþjónustu Múlaþings. Ráðið er í stöðuna frá 15. ágúst nk. eða eftir samkomulagi.

Starfskraftur sinnir meðal annars verkefnum tengdum málefnum fatlaðs fólks, bæði börnum, fullorðnum og fjölskyldum þeirra, samþættingu í þjónustu farsældar barna, almennri félagslegri ráðgjöf sem og örðum þeim störfum sem almennt tilheyra sviðinu.

Næsti yfirmaður er félagsmálastjóri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Margþætt aðstoð og stuðningur við þjónustunotendur.
  • Tilsjón, ráðgjöf og stuðningur á heimilum.
  • Málstjóri í samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og þátttaka í teymi innan Austurlandslíkansins.
  • Skipuleggur og hefur umsjón með stuðningsþjónustu fyrir fötluð börn og fjölskyldur þeirra og gerir einstaklingsbundnar þjónustuáætlanir og/ eða stuðningsáætlanir.
  • Þverfagleg teymisvinna og samstarf við fatlað fólk, aðstandendur og aðra er veita einstaklingnum þjónustu.
  • Situr í stuðningsteymi einstaklinga með langvarandi stuðningsþarfir samkvæmt lögum þar um.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gerð er krafa um að viðkomandi hafi háskólamenntun á viðurkenndu fagsviði sem nýtist í starfi s.s. þroskaþjálfun, iðjuþjálfun.
  • Þekking og reynsla af félagsþjónustu, málefnum fatlaðs fólks, stuðningsþarfa barna og ungmenna.
  • Geta og vilji til samvinnu og hæfni til að starfa í teymi og hugsa í lausnum.
  • Reynsla af starfi í opinberri stjórnsýslu er kostur.
  • Góð alhliða tölvukunnátta, þekking á OneSystems er kostur
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
  • Hreint sakavottorð.
  • Bílpróf.
Fríðindi í starfi

Styttri vinnuvika, heilsueflingarstyrkur.