Ráðgjafi á Reyðarfirði
Við leitum að áhugasömum einstaklingi í starf ráðgjafa einstaklinga. Viðkomandi þarf að sýna frumkvæði, metnað og vilja til að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf um fjármál einstaklinga
- Aðstoð í stafrænum lausnum bankans
- Að veita framúrskarandi þjónustu
- Önnur verkefni eftir nánara samkomulagi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þjónustulund
- Frumkvæði
- Nákvæmni og talnaskilningur
- Samstarfshæfni
- Góð tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
- Gott og sveigjanlegt vinnuumhverfi
- Fjölbreytt verkefni
- Samkeppnishæf laun
- Tækifæri til að vaxa og þróast
Nánari upplýsingar veitir Brynjar Árnason, útibússtjóri [email protected] – 440 3669.
Hjá Íslandsbanka starfa um 700 manns sem hafa ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á að skapa virði til framtíðar með traustum rekstri og framúrskarandi þjónustu.
Umsóknarfrestur er til og með 15. desember og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Íslandsbanka: Ráðgjafi á Reyðarfirði – 50skills