Óskum eftir að ráða öflugan stöðvarvörð í Fljótsdalsstöð
Landsvirkjun óskar eftir að ráða vélfræðing til að annast
rekstur, eftirlit og viðhald aflstöðva og veitumannvirkja
við Fljótsdalsstöð. Stöðvarvörður vinnur markvisst að auknu
rekstraröryggi og hagkvæmni í rekstri og hefur eftirlit með að
öryggiskröfum Landsvirkjunar og opinberra aðila sé framfylgt.
– Vélfræði-, iðnfræði- eða tæknifræðimenntun
– Þekking á viðhaldi búnaðar; gufu-, loft-, kæli-,
vökva- og rafkerfa
– Þekking á teikniforritum, iðntölvum og
stjórnkerfum er kostur
– Reynsla af störfum tengdum raforkuvirkjum
eða iðnaði er æskileg
– Frumkvæði, skipulag, sjálfstæð vinnubrögð
og hæfni til að tileinka sér nýjungar
– Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni
til að vinna með öðrum
– Geta til að kynna starf sitt og starfsvettvang
fyrir hópum og einstaklingum
– Góð tölvukunnátta
Sótt er um starfið á vef Landsvirkjunar, landsvirkjun.is. Nánari upplýsingar
veitir Þóra María Guðjónsdóttir ([email protected]).
Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember 2018.