Öryggisvörður Securitas á Austurlandi

Securitas á Austurlandi sækist eftir að ráða til sín tvo öryggisverði til að sinna störfum öryggisvarðar í heilbrigðisgeiranum. Lögð er rík áhersla á jákvætt hugarfar, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.

Öryggisverðir í heilbrigðisgeiranum sinna eftirliti með sjúklingum sem eru inniliggjandi og er þeim ætlað að tryggja öryggi sjúklings og starfsfólks. Öryggisverðir sitja yfir einum sjúklingi í hvert sinn og sjá til þess að passa upp á þau áhersluatriði sem sett eru fyrir, þau kunna að vera af ýmsum toga.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tryggja öryggi sjúklings og starfsfólks
  • Fylgir sjúklingi í öll dagleg verkefni og tryggir öryggi hans og þeirra sem þar eru
  • Er fyrsta viðbragð sýni sjúklingur ógnandi tilburði
  • Fylgist með hverskyns öryggisatriðum og bregst við þegar á þarf að halda
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sýnir frumkvæði í starfi og getu til að vinna sjálfstætt
  • Hafa metnað til að takast á við krefjandi verkefni
  • Öryggisvitund, seigla og ákveðni
  • Er agaður og áreiðanlegur í starfi
  • Reynsla af heilbrigðisstörfum er kostur
Secret Link