Öryggisvörður á Austurlandi

Securitas á Austurlandi sækist eftir að ráða til sín öryggisverði vegna aukinna umsvifa.

Viðkomandi kemur til með að sinna störfum öryggisvarðar í almennri öryggisgæslu. Lögð er rík áhersla á jákvætt hugarfar, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.

Starfið felur í sér almenna þjónustu við viðskiptavini Securitas, viðbragð á gæslustað, ásamt því að tryggja almennt öryggi og eftirlit með hvers konar öryggisþáttum viðskiptavina okkar.

Ef þú…

  • Býrð yfir góðri þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sýnir frumkvæði í starfi og getu til að vinna sjálfstætt
  • Hefur metnað til að takast á við krefjandi verkefni
  • Býrð yfir aga og ert áreiðanleg/ur í starfi
  • Býrð yfir góðri íslenskukunnáttu

…þá gætum við verið að leita af þér

Um er að ræða vaktavinnu, unnið viku og frí í viku. Starfið hentar öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð.

Umsóknir skulu berast í gegnum www.securitas.is

Securitas er leiðandi fyrirtæki á öryggismarkaði en samstilltur og góður hópur starfsfólks kappkostar við það að veita framúrskarandi þjónjustu með það að markmiði að auka öryggi okkar viðskiptavina

 

Secret Link