Öryggisgæsla á Egilsstöðum
Securitas á Austurlandi leitar eftir starfsfólki til að sinna störfum öryggisvarða á Egilsstöðum. Meðal verkefna er almenn öryggisgæsla, yfirsetur sjúklinga, ásamt ýmsum tilfallandi verkefnum.
Lögð er rík áhersla á jákvætt hugarfar, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.
Ef þú…
- Býrð yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sýnir frumkvæði í starfi og getu til að vinna sjálfstætt
- Býrð yfir metnaði til að takast á við krefjandi verkefni
- Vilt vinna á lifandi vinnustað með gefandi verkefnum
…þá gætum við verið að leita af þér!
Unnið er á vöktum og hentar starfið öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð. Umsóknarfrestur er til og með 17. janúar nk. og skulu umsóknir berast í gegnum www.securitas.is
Frekari upplýsingar veitir Eva Dröfn Sævarsdóttir, verkefnastjóri, í síma 580 7000.
Securitas er leiðandi fyrirtæki á öryggismarkaði en samstilltur og góður hópur starfsfólks kappkostar við það að veita framúrskarandi þjónustu með það að markmiði að auka öryggi okkar viðskiptavina.