
Origo: Tæknistarf á Austurlandi
Origo leitar að sjálfstæðum og útsjónarsömum starfsmanni til að sinna umsjón með viðskiptavinum og vettvangsþjónustu á Austurlandi með áhuga á að tileinka sér nýjungar og takast á við krefjandi verkefni.
Við veitum starfsfólki sveigjanleika í starfi og stuðlum að jafnvægi vinnu og einkalífs.
Helstu verkefni
- Almenn notendaþjónusta og upplýsingagjöf
- Heimsókn til viðskiptavina og aðstoð í gegnum síma
- Uppsetningar og viðgerðir á tölvu- og prentbúnaði
- Uppsetningar og þjónusta við hugbúnaðarlausnir
- Umsýsla með póstlausnir og viðskiptahugbúnað á snjalltækjum
- Reglulegir fundir með núverandi og tilvonandi viðskiptavinum
- Þróun nýrra viðskipta og tækifæra á svæðinu
Hæfniskröfur
- Rík þjónustulund og skilningur á þörfum viðskiptavina
- Skipulagshæfni, sjálfstæði og öguð vinnubrögð
- Góð þekking á Windows stýrikerfum auk MacOS og Linux þekking er kostur
- Góð þekking á virkni útstöðva
- Þekking á ITIL aðferðafræðinni er kostur
- Reynsla af helstu snjalltækjum, Android og Ios
- Menntun sem nýtist í starfi og tæknilegar vottanir t.d. Microsoft gráður, eru kostur
Hjá Origo starfar öflugur hópur fólks sem nýtir hugvit sitt til að efla árangur, hagsæld og öryggi viðskiptavina. Gildin okkar eru þjónustuframsýn, samsterk og fagdjörf.
Sótt er um starfið hér á vef Origo. Umsóknarfrestur er til og með 14. mars 2021. Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað. Nánari upplýsingar veita sérfræðingar á mannauðssviði Origo, (mannaudur@origo.is)
Sæktu um hér.