Myndavélasérfræðingur á Austurlandi

Securitas leitar að myndavélasérfræðingi!

Vegna aukinna verkefna leitar Securitas að liðsauka í sittfrábæra tækniteymi á Austurlandi. Lögð er rík áhersla á jákvætt hugarfar, framúrskarandi þjónustu, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.

Ef þú…

  • hefur brennandi áhuga á tækninýjungum og góða almenna tækniþekkingu
  • sýnir frumkvæði í starfi og metnað til að takast á við krefjandi verkefni
  • býrð yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • hefur gott vald á talaðri og skrifaðri íslensku

… þá gætum við verið að leita af þér

Starfið felur í sér fjölbreytta tækni- og eftirlitsþjónustu á öryggismyndavélum og eftirlitsbúnaði ásamt öðrum öryggiskerfum.

Í boði er fullt starf og er vinnutíminn frá kl. 8:00-16:00 virka daga. Störfin henta öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini.

Umsóknarfrestur er til og með 20. október nk. og skulu umsóknir sendar inn á www.securitas.is.

Nánari upplýsingar veitir Guðjón Birgir Jóhannsson, útibússtjóri á Austurlandi, í síma 580-7000Securitas er leiðandi fyrirtæki á öryggismarkaði en samstilltur og góður hópur starfsfólks kappkostar við það að veita framúrskarandi þjónustu með það að markmiði að auka öryggi okkar viðskiptavina.