
Múrarar og smiðir – Reyðarfjörður
VHE óskar eftir trésmiðum og múrurum til starfa á múr- og málningarverkstæði okkar á Reyðarfirði.
Helstu verkefni eru:
- Múrviðgerðir og endurfóðranir á deiglum, ofnum og öðrum álverstengdum búnaði
- Múr- og trésmíðaverkefni í stóriðju, nýsmíði og viðgerðir
- Viðhaldsverkefni við íbúðar- og iðnaðarhúsnæði
- Þjónusta við eigin eignir
VHE starfar bæði á byggingarmarkaði og þjónustar ið naðinnn og býður því upp á fjölbreytt, krefjandi starf þar sem hægt er að afla sér víðtækrar reynslu.
Nánari upplýsingar um störfin má óska eftir hjá [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2022 og hægt er að sækja um störfin í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Múrarar og smiðir – Reyðarfjörður | VHE | Fullt starf Reyðarfjörður | Alfreð (alfred.is)