Móttökustjóri / Reception manager
Við leitum að öflugum og reynslumiklum einstaklingi með framúrskarandi þjónustuframkomu til að vinna í móttöku hótelsins.
Starfssvið:
- Bera ábygð á sölu- og bókunarmálum hótelsins
- Samskipti við innlenda og erlenda söluaðila
- Fagleg móttaka gesta og upplýsingagjöf
- Þjónusta, sala og úrlausn mála
- Bókanir, innritun, símvarsla og uppgjör
- Starfsmannamál
Hæfniskröfur
- Þekking og reynslu af sölu- og bókunarmálum hótela
- Sjálfstæð vinnubrögð, sveijanleiki, frumkvæði og samskiptafærni
- Þjónustuvilji og vönduð framkoma
- Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
Umsóknum er skilað á netfang [email protected]
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hulda Elisabeth Daníelsdóttir Hótelstýra í síma 471 1114 eða 868 9703
Bæði konur og karlar eru kvött til að sækja um starfið.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Möguleiki á húsnæði fyrir þá sem vilja.