Móttökuritari – Vopnafjörður – SUMARAFLEYSING

Móttökuritari – Vopnafjörður – SUMARAFLEYSING 2020

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða móttökuritara í sumarafleysingu á heilsugæsluna á Vopnafirði. Hluti starfs felst í ræstingu á starfsstöð. Starfshlutfall er 100%.

Helstu verkefni og ábyrgð
Símsvörun og vinna með afgreiðslukerfi við móttöku skjólstæðinga heilsugæslunnar, einng þrif á heilsugæslustöðinni.

Hæfnikröfur
Krafist er tölvukunnáttu og ríkrar þjónustulundar. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin og kunnátta í ensku og fleiri tungumálum æskileg.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.

Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.03.2020

Nánari upplýsingar veitir
Þórarna Gró Friðjónsdóttir – [email protected] – 470-3028 & 849-1455
Emil Sigurjónsson – [email protected] – 470-3053 & 895-2488

Vopnaf. Heilsugæsla
Laxatúni
690 Vopnafjörður

Smelltu hér til að sækja um starfið