Móðir Jörð leitar að starfsmanni til að annast matseld fyrir Asparhúsið í Vallanesi í sumar

Langar þig að vinna í náttúrulegu umhverfi ? Móðir Jörð leitar að starfsmanni til að annast matseld fyrir Asparhúsið í Vallanesi í sumar

Í Asparhúsinu í Vallanesi er boðið upp á hlaðborð rétta úr ræktun staðarins en Móðir Jörð er leiðandi á sviði lífrænnar ræktunar á korni og grænmeti. Vaxandi matvælaframleiðsla fer fram á staðnum og fjöldi ferðamanna heimsækir okkur á hverju ári.

Við leitum að einstaklingi til að annast matseld í takt við árstíðir og hráefni staðarins.   Menntun og/eða reynsla á sviði matreiðslu er kostur. Áhugi á heilsu og góðum mat er skilyrði, sem og góð enskukunnátta.

Um er að ræða fjölbreytt starf í fallegu umhverfi í vaxandi starfsemi sem hefur sjáflbærni að leiðarljósi en býlið og allar afurðir eru vottaðar lífrænar.  Nánari upplýsingar er að finna á www.modirjord.is en umsóknir sendist á [email protected] .

Secret Link