Matráður í móttökueldhús – Seyðisfjörður
Matráður í móttökueldhús óskast í fullt starf frá 1. apríl 2019
Starfssvið
Móttaka á mat úr skólaeldhúsi, framreiðsla hans og umsjón með hressingu og kaffiveitingum fyrir nemendur og starfsfólk
Bakstur, frágangur og þrif á eldhúsi. Innkaup og önnur störf tengd eldhúsi.
Umsóknarfrestur til og með 20. mars 2019
Menntunar- og hæfniskröfur
Góð hæfni í mannlegum samskiptum og góð hæfni til að vinna með börnum og ungmennum.
Sveigjanleiki, stundvísi og áreiðanleiki.
Bíll til umráða og bílpróf er kostur.
Góð íslenskukunnátta.
Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
Almennar kröfur og upplýsingar um öll störf við Seyðisfjarðarskóla
Karlar og konur eru hvött til að sækja um.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og AFLI eftir atvikum.
Sótt er um á heimasíðu sveitarfélagsins.
Við ráðningu skal liggja fyrir sakavottorð eða heimild skólastjóra til að afla upplýsinga úr sakaskrá skv. lögum.
Gögn um menntun og/eða leyfisbréf og ferilskrá skulu fylgja með umsókn ásamt upplýsingum um meðmælendur.
Upplýsingar um störfin, skólann og annað, veitir skólastjóri í síma 470-2327 eða 7717217, netfang [email protected]
Sjá nánar um skólann: https://seydisfjardarskoli.sfk.is/