Mannauðsráðgjafi á Austurlandi
Eimskip leitar að öflugum og metnaðarfullum mannauðsráðgjafa til starfa á Austurlandi. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á fjölbreyttum mannauðsmálum, nýtur þess að vinna með fólki og vill vera virkur samstarfsaðili stjórnenda í öflugu rekstrarumhverfi.
Starfsstöð er á skrifstofu Eimskips við Mjóeyrarhöfn.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita stjórnendum ráðgjöf og stuðning í daglegum mannauðsmálum
- Tryggja innleiðingu og framkvæmd mannauðsstefnu félagsins
- Taka þátt í þróun og innleiðingu mannauðstengdra umbótaverkefna
- Skipuleggja og framkvæma ráðningaferli í samstarfi við stjórnendur
- Samræma móttöku, þjálfun og aðlögun nýliða
- Umsjón með mannauðstengdum mælikvörðum, greiningu gagna og framsetningu niðurstaðna
- Styðja stjórnendur við undirbúning, framkvæmd og úrvinnslu starfsmannasamtala
- Styðja við endurmenntun og starfsþróun starfsfólks í samstarfi við stjórnendur
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Haldbær reynsla af mannauðsmálum æskileg
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Góð tölvukunnátta og færni til að læra á ný kerfi
- Mikil skipulagshæfni og jákvætt viðhorf
- Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- Framúrskarandi samskiptafærni og rík þjónustulund
Fríðindi í starfi
- Farsímaáskrift og nettenging heima
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
- Öflugt starfsmannafélag og aðgangur að orlofshúsum víðs vegar um landið
- Heilsu- og hamingjupakka sem inniheldur m.a. samgöngustyrk, líkamsræktarstyrk, styrk fyrir sálfræðiþjónustu og krabbameinsskoðun