Lyfja Reyðarfjörður – Sala og þjónusta
Við leitum af öflugum liðsmanni í Lyfju Reyðarfirði.
Við leitum að sjálfstæðum og skipulögðum starfsmanni með ríka þjónustulund og góða almenna tölvukunnáttu í sölu- og þjónustustarf í Lyfju Reyðarfirði. Starfið felst í ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum, afhendingu lyfja gegn lyfseðli, afgreiðslu á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra.
Helstu verkefni:
- Almenn afgreiðslustörf
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
- Afhendng lyfja gegn lyfseðli
- Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund
- Áhugi á mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og gott viðmót
- Góð almenn tölvukunnátta
- Geta til að starfa undir álagi
- Reynsla af verslunarstörfum er kostur
- Reynsla af störfum í apóteki er kostur
Opnunartími er 11-18
Allir umsækjendur þurfa að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og vera að minnsta kosti 20 ára.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Jónsdóttir, Lyfsali Lyfju Neskaupstað í síma 477 1118.
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.