Lyfja Reyðarfirði – Sala og þjónusta

Við leitum að öflugum liðsmanni í Lyfju Reyðarfirði

Við leitum að sjálfstæðum og skipulögðum starfsmanni með ríka þjónustulund og góða almenna tölvukunnáttu í sölu- og þjónustustarf í Lyfju Reyðarfirði. Starfið felst í ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum, afhendingu lyfja gegn lyfseðli, afgreiðslu á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra.

Helstu verkefni

  • Almenn afgrieðslustörf
  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli
  • Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra

Hæfniskröfur

  • Rík þjónustulund
  • Áhugi á mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og gott viðmót
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Geta til að starfa undir álagi
  • Reynsla af verslunarstörfum er kostur
  • Reynsla af störfum í apóteki er kostur

Vinnutími er 11-16 alla virka daga.

Allir umsækjendur þurfa að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og vera að minnsta kosti 20 ára. Gott ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Jónsdóttir, Lyfsali Lyfju Neskaupstað í síma 477 1118.

Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Lyfju: Lyfja Reyðarfirði – sala og þjónusta – 50skills