Lögfræðingur – Lögreglustjórinn á Austurlandi
Embætti Lögreglustjórans á Austurlandi auglýsir laust til umsóknar starf saksóknarfulltrúa/löglærðs fulltrúa við embættið. Skrifstofa embættisins er staðsett á Eskifirði en auk þess eru starfstöðvar víðar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst einkum í afgreiðslu lögreglumála, aðstoð við ákvörðun um saksókn, umsjón með sektargerðum og samningu ákæra og greinargerða vegna meðferðar sakamála. Í starfinu felst einnig náið samstarf með lögreglu, skipulag verkefna, aðstoð og fagleg umsjón með rannsóknum sakamála, flutningur rannsóknarmála og sakamála fyrir dómi, umsagnir vegna leyfa, útgáfa þeirra og úrlausn lagalegra álitaefna á sviði lögregluréttar.
Hæfniskröfur
- Fullnaðarnám í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi.
- Góð þekking á sakamálaréttarfari.
- Starfsreynsla á sviði sakamála.
- Þekking eða reynsla á sviði stjórnsýslu.
- Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Gott vald á ensku.
- Góð tölvukunnátta og þekking á málaskrárkerfi lögreglu.
- Frumkvæði, sjálfstæði, skipulag og jákvæðni.
- Mjög góð samvinnu- og samskiptahæfni.
- Sveigjanleiki.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag lögfræðinga hafa gert.
Um fullt starf er að ræða og ætlast er til að viðkomandi geti hafið störf hið fyrsta. Ráðið verður til 6 mánaða ráðningu með fastráðningu í huga.
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Umsókn gildir í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Embættið leggur áherslu á jafnrétti og hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.01.2023
Nánari upplýsingar veitir
Margrét María Sigurðardóttir, Lögreglustjórinn á Austurlandi – [email protected] – 4440600