Lífeindafræðingur – Neskaupstaður

Lífeindafræðingur – Rannsóknardeild Heilbrigðisstofnunar Austurlands 

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða lífeindafræðing á rannsóknardeild stofnunarinnar í Neskaupstað. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Rannsóknardeild HSA starfrækir rannsóknarstofur á Umdæmissjúkrahúsi Austurlands og á Heilsugæslustöðinni Egilsstöðum.

Helstu verkefni og ábyrgð
Rannsóknardeild HSA sinnir öllu starfssvæði HSA frá Djúpavogi til Vopnafjarðar. Viðkomandi þarf að sinna bakvöktum skv. fyrirliggjandi bakvaktaplani.

Hæfnikröfur
Íslenskt starfsleyfi. Lögð er áhersla á faglegan metnað, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag lífeindafræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.

Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.05.2020

Nánari upplýsingar veitir
Eva Mjöll Þorfinnsdóttir – [email protected] – 470-1482 & 776-2443
Emil Sigurjónsson – [email protected] – 470-3053 & 895-2488

Neskst. Sjúkrah. Rannsókn
Mýrargötu 20
740 Neskaupstaður

Smellið hér til að sækja um starf