
Liðveisla við börn í íþróttum
Múlaþing leitar að sjálfstæðum, hressum, ábyrgðarfullum og jákvæðum einstaklingum yfir 18 ára aldri til að starfa með börnum með stuðningsþarfir í íþróttum.
Starfsmaður starfar með barni og/eða ungmenni með einhvers konar fötlun, röskun og/eða sérþarfir. Meðal verkefna eru félagslegur stuðningur og að auka virkni einstaklingsins. Mikil áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð, lausnamiðaða hugsun og frumkvæði í daglegum verkefnum.
Um er að ræða hlutastarf (um það bil 25%) og er starfið laust nú þegar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Styðja og efla barnið í íþróttaiðkun.
- Félagslegur stuðningur.
- Þjálfun í athöfnum daglegs lífs.
- Virkja og efla sjálfstæði.
- Önnur verkefni í samráði við yfirmann og foreldra barns.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla og þekking sem nýtist í starfi
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, hæfileiki til samvinnu, sveigjanleika og tillitssemi.
- Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
- Lausnarmiðaður og geta brugðist hratt og vel við óvæntum atburðum sem upp koma.
- Hreint sakavottorð
- Bílpróf er kostur