Leitum að liðveitendum á Egilsstöðum

Leitum að liðveitendum á Egilsstöðum

Félagsþjónusta Fljótsdalshéraðs auglýsir eftir traustu og jákvæðu fólki, 18 ára og eldra, til að starfa við liðveislu með börnum, ungmennum og fullorðnum. Markmið liðveislu er að rjúfa félagslega einangrun, efla einstaklingin í félagslegum samskiptum og gera honum kleift að njóta menningar og félagslífs. Um er að ræða skemmtilegt, gefandi og fjölbreytt starf.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Ragna Einarsdóttir hjá Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs í síma 470 0700 eða á netfangið [email protected]

Secret Link