Leikskólinn Lyngholt óskar eftir deildarstjóra á elstu deild.

Laus er staða deildarstjóra á elstu deild leikskólans Lyngholts, Reyðarfirði.

Á elstu deild er unnið með ART, PALS ásamt uppeldi til ábyrgðar.

Í leikskólanum Lyngholti eru tæplega 90 nemendur. Skólastarfið er byggt á Uppeldi til ábyrgðar og ART. Kjörorð skólans eru „Allir geta eitthvað, engin getur allt“.

Skólinn er einn af fimm leikskólum í Fjarðabyggð sem eru hluti af öflugu skólasamfélagi. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans, lyngholt.leikskolinn.is

Helstu verkefni og ábyrgð

Deildarstjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og uppeldisstefnu Fjarðabyggðar.

Deildarstjóri er hluti af stjórnendateymi leikskólans og ber ábyrgð á deildarstarfi, verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar.

Deildarstjóri hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.

Deildarstjóri ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu í leikskóla. (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Þekking á uppeldisstefnum Fjarðabyggðar er æskileg.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum sem og hæfnii í mannlegum samskiptum, frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Secret Link