Leikskólinn Lyngholt auglýsir eftir leikskólakennurum

STÖÐUR LEIKSKÓLAKENNARA VIÐ LEIKSKÓLANN LYNGHOLT

Leikskólinn Lyngholt auglýsir eftir leikskólakennurum. Um er að ræða 100 % stöður tímabundið til eins árs, með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Leikskólinn er sex deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum Grænfána skóli og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART.

Störfin eru laus frá 4. janúar 2021. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til 1. desember 2020

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennari: Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta

Ef ekki fást einstaklingar með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.

starfslýsing leikskólakennara

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Nánari upplýsingar gefur Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri í síma 474-1257/860-3176 eða á [email protected] eða Gerður Ósk Oddsdóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 474-1257 eða á [email protected]

Sótt eru um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér