Leikskólinn Eyrarvellir í Neskaupstað leitar að matráð

MATRÁÐUR VIÐ LEIKSKÓLANN EYRARVELLI Í NESKAUPSTAÐ

Leikskólinn Eyrarvellir í Neskaupstað leitar að matráð

Eyrarvellir er átta deilda leikskóli sem er skipt í 8 deildir. Leikskólinn leggur áherslu á vináttu,læsi og uppbyggingastefnuna Uppeldi til ábyrgðar. Leikskólinn er fyrir börn frá 1 til 6 ára og er sérstaklega sóst eftir matráð með þekkingu og áhuga á næringu barna á leikskólaaldri.

Matráður sér um daglegan rekstur eldhúss leikskólans. Um framtíðarstarf er að ræða. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst, eigi síðar en 16. júlí 2020.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Menntun á sviði matreiðslu og næringar og /eða reynsla á því sviði.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Góð íslenskukunnátta.

Starfslýsing – Yfirmatráður Eyrarvalla

Umsóknarfrestur er til og með 1.júní 2020.

Nánari upplýsingar um starfið gefur Halla Höskuldsdóttir, leikskólastjóri í síma 477-1460 / 847-8232 eða á [email protected]

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands Íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um starfið.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér