Leikskólakennari við Leikskólann Lyngholt
Lyngholt er rúmlega 80 nemenda skóli sem skiptist á 6 deildar. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki. Lyngholt vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar og ART. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
- Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
- Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra/skólastjórnendur
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg
- Góð færni í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta