Leikskólakennari óskast

Tjarnarskógur auglýsir lausa til umsóknar stöður leikskólakennara frá og með næsta skólaári. Hlutastörf koma einnig til greina.

Næsti yfirmaður er leikskólastjóri.

Leikskólinn Tjarnarskógur er 9 deilda leikskóli með 160 börn á tveimur starfsstöðvum. Leikskólinn Tjarnarskógur er að vinna að innleiðingu á Uppeldi til ábyrgðar og horfir til fjölgreindarkenningar Howard Gardners í starfsaðferðum sínum. Einkunnarorð skólans eru: gleði, virðing, samvinna og fagmennska.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfið felur í sér almenna kennslu
  • Vinnur að uppeldi og menntun barnanna
  • Tekur þátt í gerð skólanámskrá mati á starfsmeni leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra
  • Vinnur  í nánu samstarfi við foreldra/forráðarmenn barnanna
  • Sinnir þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn). Ef ekki fæst kennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi
  • Reynsla af starfi í leikskóla æskileg
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi á að vinna með börnu
  • Sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hreint sakavottorð