Leikskólakennari

Seyðisfjarðarskóli auglýsir eftir leikskólakennara í 100% stöðu. Um framtíðarstarf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinnur að einstaklingsbundnu uppeldi og menntun barnanna
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs í samstarfi við deildarstjóra
  • Sinnir daglegum verkefnum deildarinnar í samstarfi við deildarstjóra og annað starfsfólk
  • Sinnir öðrum verkefnum sem deildarstjóri og leikskólastjóri felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun. Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi
  • Frumkvæði í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og viðkomandi stéttarfélags.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.

Vinnustaðir Múlaþings eru tóbakslausir og fjölskylduvænir.

Nánari upplýsingar veitir Þórunn Hrund Óladóttir í síma 866 8302 eða á netfangið [email protected].

Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Allir umsækjendur þurfa að gefa leyfi fyrir að upplýsinga um þá sé aflað úr sakaskrá.

Umskjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is

Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2023 og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Leikskólakennari | Leikskóladeild Seyðisfjarðarskóla (alfred.is) eða í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is undir „laus störf“.

Secret Link