Leikskólakennari
Seyðisfjarðarskóli auglýsir eftir leikskólakennara í 100% stöðu. Um framtíðarstarf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur að einstaklingsbundnu uppeldi og menntun barnanna
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs í samstarfi við deildarstjóra
- Sinnir daglegum verkefnum deildarinnar í samstarfi við deildarstjóra og annað starfsfólk
- Sinnir öðrum verkefnum sem deildarstjóri og leikskólastjóri felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun. Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi
- Frumkvæði í starfi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og viðkomandi stéttarfélags.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.
Vinnustaðir Múlaþings eru tóbakslausir og fjölskylduvænir.
Nánari upplýsingar veitir Þórunn Hrund Óladóttir í síma 866 8302 eða á netfangið [email protected]
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og örkstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Allir umsækjendur þurfa að gefa leyfi fyrir að upplýsinga um þá sé aflað úr sakaskrá
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing,is
Umsóknarfrestur er til og með 30. Október 2022 og hægt er að sækja um starfið á vefsíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is undir „störf í boði“.