LEIKSKÓLAKENNARAR VIÐ LEIKSKÓLANN LYNGHOLT
Viltu vera memm?
Má bjóða þér að koma og vinna á stórkostlegum vinnustað þar sem þú ert umkringdur tugum einstaklinga sem dvelja í Núvitund og gleði allan daginn. Ef þetta freistar þá slástu í hópinn með okkur í Leikskólanum Lyngholti, við höfum í boði bæði fullar stöður og hlutastöður. Óskastarfskrafturinn okkar hefur einlægan áhuga námi barna og vellíðan, menntun á því sviði er stór kostur en þó ekki skilyrði. Við gerum kröfur á að viðkomandi búi yfir samskiptahæfni, stundvísi, góðri íslenskukunnáttu og vilji vera memm.
Leikskólinn er sex deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum Grænfána skóli og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst. Um er að ræða 100 % stöður.
Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun áskilin
- Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði og faglegur metnaður
- Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
- Reynsla af starfi með börnum
- Ábyrgð og stundvísi
- Góð íslenskukunnátta
Starfslýsing leikskólakennara.pdf
Ef ekki fást einstaklingar með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.
Umsóknarfrestur er til 23. ágúst 2022.
Nánari upplýsingar gefur Gerður Ósk Oddsdóttir, skólastjóri í síma 474-1250/8603176 eða á [email protected] eða Lísa Lotta Björnsdóttir, síma 474-125 [email protected]
Sótt er um störfin á ráðningavef Fjarðabyggðar starf.fjardabyggd.is