Leikskólakennarar við Leikskólann Dalborg Eskifirði

Leikskólinn Dalborg auglýsir eftir leikskólakennurum til starfa.
Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum skóli á grænni grein og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar.

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til 22. ágúst.
Ef ekki fást einstaklingar með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar – starf.fjardabyggd.is
Nánari upplýsingar gefur Madlena Petrova, leikskólastjóri í síma 476-1341 eða á [email protected] og einnig Helena Rós Rúnarsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 476-1341 eða á [email protected]

Secret Link