Laust starf yfirþroskaþjálfa í búsetuþjónustu hjá Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs
Félagsþjónusta Fljótsdalshéraðs óskar eftir að ráða yfirþroskaþjálfa í 100 % starf með vinnutíma frá
08.00-16.00. Starfið er laust frá 1. apríl n.k. eða eftir nánara samkomulagi. Til greina kemur að ráða
einstakling með aðra menntun s.s. iðjuþjálfa, félagsráðgjafa, kennara.
Við leitum að einstaklingi með
• Starfsréttindi þroskaþjálfa eða menntun á sviði
heilbrigðis-, mennta- eða félagsvísindum
• Reynslu af starfi með fötluðu fólki
• Stjórnunarreynslu
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
• Íslenskukunnáttu
Helstu verkefni og ábyrgð
• Stýrir starfi þjónustukjarna í búsetuþjónustu
undir stjórn yfirmanns.
• Ber ábyrgð á daglegri verkstjórn og skipulagi og
fylgir eftir verkefnum.
• Veitir leiðsögn og ráðgjöf til samstarfsaðila.
• Hefur umsjón með faglegu starfi.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Gunnarsdóttir, verkefnastjóri búsetu, netfang
[email protected] og Júlía Sæmundsdóttir, félagsmálastjóri, í síma 470 0700 og á netfangi
[email protected]. Umsóknir ásamt ferilskrá skulu berast á bæjarskrifstofur Fljótsdalshéraðs,
Lynghálsi 12, 700 Egilsstöðum fyrir 4. mars nk.
Fólk af báðum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Vinnustaðir Fljótsdalshéraðs eru reyklausir.